mánudagur, desember 6

Ormar í iðrum

Jæja maddaman hefur ekki látið til sín heyra:o) Af margvíslegum ástæðum, það var ormur í iðrum fartölvunnar og erfitt að ráða niðurlögum hans! En það tókst með góðra manna hjálp!
Maddaman brá sér á enn eitt jólahlaðborðið með mublufólkinu á laugardaginn gríðarlega góðan veitingastað. Síðan var dansað fram á rauða nótt við drengina og skrönglast heim undir morgun á pinnahælunum!
Sunnudagurinn var eilítið fótfúinn og rykugur en glaðnaði til þegar leið á daginn.
Allt í allt ágætis helgi


Engin ummæli: