þriðjudagur, desember 14

Gamlar konur og ný stígvél......

Maddaman var hjá drengjunum sínum í dag í næst síðasta skipti fyrir jól. Þeir voru minna strekktir en síðast og létu alveg eins og vitleysingar við maddömuna sem að glottir í laumi. Maddaman þarf oft að hlaupa á milli búðanna sem eru sitt í hvoru húsnæðinu og gangbraut sem aðskilur þær. Maddaman stóð og beið eftir grænu ljósi ásamt örugglega 84 gamalli konu, álíka hressileg og páfinn, gamla var soldið að sópa Kristjánshöfn með hárinu þarna í 60 den sokkabuxum og á háu hælunum, að búrast með tvo kaffipakka undir hendinni (sem að pottþétt hafa verið á tilboði!!! ).
Nema hvað að gömlu verður mjög starsýnt á fótabúnað maddömunnar, sem að í þessu tilfelli voru brún stígvél þó ekki kennd við gúmmí. Nema gamla kommentaði á það hvað stígvélin væru flott og er madamman hér með búin að leggja trendið fyrir jólagjafir til ömmu lesanda!!! Camper stígvél rúla.....!


Engin ummæli: