þriðjudagur, nóvember 30

Bragarbót....

Maddaman vill gera bragarbót.
Þegar hún var að telja upp búsetustaði sína þá gleymdist einn af aðalstöðunum
Flókagata 15: Maddaman hefur þó aldrei haft lögheimili sitt þar formlega en þar hefur maddaman getað komið jafnt á nóttu sem degi síðastliðin 7 ár. Innifalinn leigubílaakstur út fyrir borgarmörkin og hvaðeina. Í harðri samkeppni við Hreyfil. Alltaf gott að koma þar, er búin að prófa flest af herbergjunum sem ætluð eru til svefns!
Þakka ábendinguna frá glöggum lesanda.

Það er auðvelt að standa sig,
ef að maður vandar sig
frá upphafi í því,
sem er innan handar
að standa sig í.

Þessa limru sem að heitir Taó orti Þorsteinn Valdimarsson frændi minn. Mér þykir hún ákfalega góð og er reyndar hrifin af kveðskap hans það sem að ég hef lesið.


mánudagur, nóvember 29

Þrjóskan góða

Maddaman frétti af ungum pilti sem er greindur á opinberum pappírum með þrjósku, maddaman vill meina að það hljóti að vera krónísk þrjóska. Nú er það ekki við hæfi að maddaman sé mikið að fetta fingur út í greiningar og syndrom hverskyns ( svona í ljósi þess að þessar greiningar veita maddömunni lifibrauð ) En maddaman heldur samt að það sé mikið af krónískt þrjósku fólki til, maddaman er allavega harðánægð með sitt þrjóskugen sem oft hefur komið sér vel í harðri lífsbaráttu maddömunnuar!
Dettur henni þá kannski fyrst til hugar þegar madömmubróðir drap niður fæti á Kastrupvelli forðum. Maddman mælti sér mót við bróður og beið spennt eftir að sjá ásjónu hans lýsa upp völlinn. Maddaman dokaði og dokaði og dokaði eins og maðurinn sagði forðum og sá hálfa íslensku þjóðina geisast út út vélinni en ekkert bólaði á bróður. Eftir klukkutíma var maddaman farin að ókyrrast og setti sig í samband við flugmálastjórn og hafði maðurinn í vélina farið. Maddaman bað þá flugvallarstarfsmenn um að athuga hvort að nokkuð væri verið að starfa við að leita innvortis í bróður sælum! Ekki voru starfsmenn tepptir við það en þessi elskulega kona spurði hvort að það gæti verið að hann væri að leita að pólítísku hæli, það var nefnilega einn strand í þeirri deild! Eftir að hafa þjarmað að flugvallastarfsmönnum dágóða stund var hann kallaður upp í hátalarakerfinu tvisvar. Ekkert gerðist. Það var að verða grámórautt sinnið í maddömunni og hugðist hún halda heim á leið. Kemur þá ekki bróðir fagnandi og bauð góðan daginn og spurði hvort maddaman væri löngu komin! Þá sat hann bara og skóflaði í sig nautasteik og öli og beið eftir að maddaman kæmi steðjandi upp í fríhöfnina að hitta hann. Jú hann hafði sossum heyrt að það væri verið að kalla á einhvern Stefánsson en honum og ferðafélaganum kom saman um að það gæti ekki verið að neinn vildi ná tali af honum í útlöndum! Maddaman gat ekki annað en glott í laumi og hann fékk syndaaflausn. Enda vanur því að millilenda bara á þessum velli!
Ekki meira á þessum drottins degi....

sunnudagur, nóvember 28

Maddömmudjamm

Madamman er að byrja júlefrokostvertíðina og byrjaði hana með stæl! Down town með stelpunum, ægilega fínt út að borða á Brasserie Chit Chat. Lifrakæfa, bambi og súkkulaðikaka sem var bara snilld! Síðan var farið á djammið með frændum vorum færeyingum. Það er búið að skoða alla góða árganga í íslenskum karlmönnum svo nú eru það bara Færeyingarnir eftir. Madamman var fyrir vonbrigðum, þarna voru litlir drengir með lopahúfur sem að náðu maddömunni rétt i mitti og helmingurinn af Færeyska flotanum í landlegu en doldið þreyttir svona!!! Skildu ekkert í uppruna mínum fyrst að ég var ekki frá "Fúglafirði, Klakksvík, Sudurey eller Tórshavn"!!! Já svo er nú það. Maddaman kom heim léttreykt einsog lærin frá SS og fannst gott að fyrirhitta flet sitt!

laugardagur, nóvember 27

Lumbran....

Maddaman hefur verið með lumbru í dag og gamalt húsráð í sveit maddömunar og nærsveitum er að lúra úr sér lumbruna. Það hafði enga þýðingu hvort að lumbran var handleggsbrot, kvef eða aðrir kvillar. Bara að lúra þetta úr sér! Enda hefur maddaman gert það svo til vandræða horfir nánast og vaknaði fyrr en grannarnir voru farnir að tjúna upp teitið.
Meira síðar..

fimmtudagur, nóvember 25

Maddaman var búin að blogga þessi lifandis býsn í gærkveldi en bar svo við að bara fyrirsögnin dúkkar upp! En maddaman gefst nú ekki upp þótt móti blási og prófar aftur. Það kætir maddömuna mikið þegar að sólin stingur fram kollinum þessa daga sem að birtutíminn er af skornum skammti! Þá sér maddaman reyndar hvað rúðurnar hjá henni eru óstjórnlega drullugar en það er mikið áhættuatriði að skafa skítinn af þeim og maddaman var einu sinni "næstumþvídottinútafsjöunduhæð" þegar hún flækti sinn foxy fót í internetsnúrunni! Þetta var meðan maddaman bjó í skápnum. Þetta varð til þess að maddaman fór að rifja upp alla þá staði sem að hún hefur búið á í gegnum tíðina!

Óðals Sumarhúsabóndans og konu hans: Maddaman flutti í sér herbergi þegar hun var 4 ára og lokaði á eftir sér! Á ennþá sérherbergi með styttum og fleira góssi!
Heimavistin Brúarási: Maddaman bjó þar alla vetur frá því að hún var 7 vetra til 15 vetra. Grenjaði mikið fyrsta veturinn af heimþrá- mest stallsystur sinni til samlætis en allt gekk vel eftir það. Prófaði öll herbergin þar
Miðgarður Alþýðuskólanum Eiðum. Maddaman var þar í 10 bekk og stalst aldrei yfir til strákanna þrátt fyrir að hana langaði mikið til þess!
Gljúfraborg, Breiðdal- Maddaman hafði sumardvöl þar og naut skjóls skólasystur sinnar og vinkonu. Vann í fiski á Breiðdalvík og vakti húsráðendur með slæmum draumförum sínum um nætur.
Selás 25 Egilsstöðum- maddaman bjó þar fyrsta veturinn i menntó. Þar fylgdust grannarnir grannt með öllum gestagangi og kostaði miklar yfirheyrslur ef ókunnugir bílar sáust þar um nætur!
Heimavist ME. þar bjó maddaman tvo vetur og skemmti sér konunglega. Prófaði allavega 3 herbergi til búsetu opinberlega.
Tjarnarlönd 22- Maddaman hafði sumarsetu þar við 2 mann hjá frænku sinni!
Verbúðin á Breiðdalsvík- Bjó með vinkonum sínum og einum róna þar sumarlangt. Gleymst hafði að þrífa eftir síðasta síldarævintýri og róninn enginn pempía svosem. Gríðarlega fjölskrúðugt dýralíf!
Tjarnarbraut - maddaman leigði við þriðja mann efri hæð af prentaranum sem að snappaði daginn sem að madaman fyllti tuginn og henti henni út "enda óþolandi umferð af strákastóði hérna alla daga og nætur". Maddaman náði fullum sáttum við prentarann og hélt sínum búskap áfram með strákastóðinu ótrauð.
Grunnskólinn Hallormsstað- maddman bjó á almenningsklósettum í kjallaranum þar sumarlangt þó var salernisnotkun í lágmarki þetta sumarið því að maddaman svaf undir sturtunum. Mikill og góður selskapur af kóngulóm það sumarið
Sólvallagatan í Vesturbænum- maddaman á heimavist eina ferðina enn við þriðja mann i herbergi. Sambúðin gekk upp og ofan. Annar herbergisfélaginn ólétt en mest geðstirð samt og hin geymdi pitsur og fleira góðgæti undir rúminu sínu dögum saman!
Sigtún - Patreksfjörður- maddaman bjó í endaíbúð í verkamannabústöðum. Þar reyndi maður að komast inn um svefnhergbergisgluggann og svalahurðina að næturlagi. Maddaman skaut á skyndifundi með sér og sloppnum undir sænginni! Hugrökk að vanda skipaði maddaman manninum á brott á kjarngóðri íslensku. Ekki dugði þetta eins og í Búkollu forðum. Maddaman staðráðin í að standa vörð um siðprýði sína hringdi þá á lögregluna sem bjó á næsta götuhorni. Þeir brugðust skjótt við og komu eftir klukkutíma!!! Þá var maðurinn löngu búin að gefast upp á þessu brölti! Enga samúð fékk maddaman út á þetta. Sumarhúsabóndinn bauðst til að lána byssu að nafninu 244 og vinkona maddömunar ráðlagði henni að miða límbyssunni á óboðna gesti, passa bara að láta snúruna ekki sjást!!!
Bartholinsgade-Kaupmannahöfn- maddaman bjó sumarlangt við annan mann Dana. Herbergi maddömunar var inn af herbergi Danans og hann var með nýja kærustu í gangi, langhlaupara ef að ég man rétt! Say no more
Kalveboden, Sydhavn - Versta hverfi sem að maddaman hefur búið í á ævinni. Bjó í herbergi sem áður höfðu búið 7 kettir í og doldið af kattarflóm sem að lögðust á sinnið á maddömunni! Þarna var rakinn slíkur að maddaman þurkaði rúmfötin á sjálfum sér eins og Fjalla-Bensi forðum!
Dalslandsgade, 8- A-711. Mikil var gleði maddömunar þegar hún fékk lyklana af skápnum góða. 2 árum og 10 mánuðum seinna færði hún sig í tvöfaldan skáp hinu megin við götunar sem að hún býr enn í!
Ekki meira að sinni

þriðjudagur, nóvember 23

Maddaman gerði gríðar lukku í vinnunni í dag! Það var nefnilega svoleiðis að gamla hreindýrið bakaði víst alltaf á frídögunum sínum þannig að strákarnir átu sætar kökur allavega tvisvar í viku og við erum ekkert að tala um neitt nart hérna! Þeir sögðu mér frá því að þegar Arne Jacobsen átti 100 ára afmæli fengur þeir 100 linsur ( kann ekki að þýða það á ylhýra en það eru svona sætar kökur frá bakaranum ) í tilefni dagsins til að bjóða kúnnunum! En þeim datt nú ekki til hugar að fara að splæsa þessu á kúnnana..heldur stútuðu þeir 3 strákar, linsunum á þremur dögum!!! Reyndar viðurkenntu þeir að hafa verið búnir að fá nóg af linsum og hafa víst ekkert verið að sækjast eftir þeim síðan!!! En allavega þá baunuðu strákarnir því á maddömuna í síðustu viku að það hefði greinilega gleymst að láta í samninginn hennar að hún ætti að baka vikulega!!! Maddaman hló nú bara að þeim...en var svo velviljuð að henda i eina gulrótarköku handa þeim í gær! Þeir voru hálfgert að afsaka sig yfir hvað þeir átu mikið en maddaman kann svooo vel að meta þegar menn láta velþóknun sína í ljós á matargerð og sýna það svo í verki! Þeir hlakka óskaplega til að hafa maddömuna með sér á jólahlaðborðið og sögðu henni meðal annars í fréttum að Davíð hefði farið út næstum öllum fötunum í fyrra. Maddaman ætlar að vera með Guð á prívatlínu næstu tvær vikur og biðja hann um að koma kirfilega í veg fyrir að Davíð fari úr restinni í ár!!!! Ef að kennarar eiga rétt á áfallahjálp vegna launamála sinna þá telur maddaman sig vera í fullum rétt að fá áfallahjálp vegna þessa máls!
Ekki meira að sinni.....
Fleira ekki í fréttum.....

mánudagur, nóvember 22

Maddaman tekur sér stundum hverfisþramm með stöllu sinni og tók hún eitt slíkt í gærkveldi. Var mikill reykjarilmur í lofti frá vinum vors og blóma í Kristjáníu, þegar kólnar í veðri kynda þeir kröftuglega kamínurnar, ekki er víst svo mikið hassið til að fíra upp í.
Þetta minnti maddömuna á lítið hesthús austur á Héraði á óðalsjörð Sumarhúsabóndans. Þar reykir kona Sumarhúsabóndans í laumi á jólaföstunni, þó ekki hass en hangikét. Maddaman hefur yfirleitt viðhaft mikil útispjót til að fá sendan krík yfir hafið til jólanna og tókst það í fyrra. Mikil var gleði maddömunnar þegar hún þefaði af heimareyktum skankanum sem Sumarhúsabóndinn hafði alið og breytt í két ásamt konu sinni! Maddaman ferðaðist með kríkinn í Metro og vakti mikinn áhuga hunda og róna þann daginn fyrir góðan ilm!
Maddaman man líka eftir stjörnubjörtum vetrarkvöldum þegar hún var stelpuhnyðra og skondraðist með Sumarhúsabóndanum að hára skepnunum. Meðan Sumarhúsbóndinn valdi hey eftir kúnstarinnar reglum allt eftir hvaða árgangur átti í hlut og gaf á garðana, fékk hnyðran að brynna eftir kúnstarinnar reglum og gefa svona minna þýðingarminni skepnum eins og hrútunum og sparispíssunum, stundum voru líka hænugrey sem að þurfti að traktera! Stundum fékk stelpuhnyðran að gefa sjálf á einn auðvelda garðann og þá þurfti að vanda til verka því að Sumarhúsabóndinn vildi ekki sjá að heyinu væri þyrlað um krærnar og hent um garðana. Sumarhúsabóndinn vildi að maður væri natin við skepnurnar og verk sín. Svo þurfti að troða moði eða heyi í poka handa hrossum Sumarhúsabóndans, það var erfitt að gera svo að Sumarhúsabóndanum líkaði vel og dró hann stelpu hnyðruna oft að landi svo að pokinn yrði steintroðinn. Svo þumlunguðust Sumarhúsabóndinn og stelpuhnyðran út með pokann, þá var að hespa húsin aftur og þá vissu hundarnir að komin var tími til að rölta til bæjar. Sumarhúsabóndinn með heypokann á bakinu sem að var helmingi stærri en stelpuhnyðran og hún með eggin í vösunum eða í húfu með heyhreiðri og ströng fyrimæli um að fara varlega með þau, þá var gott að stinga litlum lófa í heitan hramm Sumarhúsabóndans sem alltaf gat gefið sér tíma til að leiða stelpuhnyðruna þrátt fyrir að verkahringurinn væri stór.
Ekki meiri nostalgígja að sinni....

sunnudagur, nóvember 21

Einhyrningurinn.....

Stórvinkona maddömunar kallaði maddömuna Einhyrning fyrir skömmu síðar. Kom það til út af því að verið var að skiptast á skoðunum á málefnum og var Stórvinkonan hrifin af viðhorfum maddömunnar sem að henni þóttu fágæt og þar af leiðandi sæmdi hún maddömuna Einhyrningstitlinum sem að henni þykir ekki afleitur! Hins vegar veltir maddaman því fyrir sér hvort ekki væri jafnvel gott að vera marghyrningur en það gæfi þá væntanlega til kynna að persóna hefði vald á mörgum hliðum málefnis. Svona skoðanaskipti minna maddömuna alltaf á sýslumann nokkurn í Húnavatnssýslu sem að maddaman telur sig muna að hafi heitið Jón Ísberg. Hann sagði að það væru fjórar hliðar á öllum málum, þín hlið, mín hlið, hans hlið og rétt hlið og það var ekki þar með sagt að hún væri nein af fyrrnefndum!
Maddaman er annars að horfa með öðru auganu á Örnen sem að hún er ekkert alltof hrifin af (reyndar hefur maddaman smá svaghed fyrir aðalleikaranum :o) fyrstu þættirnar minntu hana á byrjunina á Njálu en þar var mannfall mikið í byrjun. Maddaman er líka dauðþreytt á þessari kynsveltu systur Hallgríms sem að myglaði í mörg ár í Vestmanneyjum við að sinna karlægri móður sinni og komst greinilega ekki einu sinni á Þjóðhátíð fyrir skassinu!
Ekki fleira spaklegt að sinni...

laugardagur, nóvember 20

Maddaman getur nú ekki annað en tekið áskorun þegar tilefni bjóðast!
Maddaman hefur dvalið mikið hjá bláu bókinni um helgina og á sennilega eftir að gera meira af því! Á hverri önn eignast maddaman nýja bók sem að henni er illa við. Eins og maddaman er nú bókhneigð. Í fyrra var bókin rauð sem að maddömunni var illa við! Maddaman hittir finnska stöllu sína einu sinni í viku til að ráða ráðum sínum um bláu bókina en sú finnska sem að kemur frá Wasa íFinnlandi (sem að hrökkbrauðið góða dregur nafn sitt af) eyðir líka miklum tíma með bláu bókinni! Maddaman vonast til að hún hafi vingast við þá bláu, þegar sá drottins dagur rennur upp að hún þarf að svara fyrir sig út úr bláu bókinni! Tæknimenn maddömunar eru alltaf að kenna henni eitthvað nýtt og á föstudaginn lærði maddaman að sækja sér kvikmyndir á netinu. Í gær horfði maddaman á Hafið sér til skemmtunar sem að henni þótti gríðargóð mynd og vel gerð. Maddaman fann sig strax í myndinni og þótti persónur vel útfærðar og litríkar! Maddaman getur nú ekki annað en vorkennt Balta kallgreyinu að þurfa að punga út með 70 millur fyrir ónýtt frystihús á Neskaupstað af öllum stöðum liggur henni við að segja.
Hér hefur verið sýnishorn af snjó í dag...en ekkert fárviðri sei sei nei! Það minnir maddömuna á fyrsta veturinn sem að hún var hérna en þá kom mikið fárviðri í lok nóvember sem að danskurinn kallaði fellibyl! Sumarhúsabóndinn faðir maddömunar sem að kallar nú ekki allt ömmu sína þegar kemur að roki reyndi ítrekað að ná í maddömuna gegnum sæstreng en maddaman svaf frá sér allar símhringingar enda búin að láta hjólið inn og örugg með sig og sitt! Sumarhúsabóndinn náði þó sambandi og hughreysti maddaman hann með þvi að norður í Hlíð kallaði maður þetta strekking!!
Fleira var ekki í fréttum

fimmtudagur, nóvember 18

Stuðningur og fleira.......

Maddaman hefur fengið fjölda stuðningsyfirlýsinga og heillaóskir með nýja bloggið. Maddömunni líður eins og hún hafi gert eitthvað merkilegt t.d. fengið gott kjör, tekið gott próf eða alið af sér afkvæmi, svo mikill er samhugurinn! En maddaman er hamingjusöm með það!
Maddaman vill að gefnu tilefni upplýsa mál málanna sem hefur legið þungt á velunnurum og aðdáendum maddömunnar...en það er hjúskaparstaða maddömunnar! Hún er óbreytt semsagt ekkert nýtt af maddömunni. Maddaman hefur áður lofað og lýst því yfir í votta viðurvist að það verður gefin út tilkynning þegar eitthvað gerist, á prime time á Rás2 milli veðurfregna og dánarfregna! En þá veit maddaman að eyru manna eru hvað sperrtust! Þetta "ástand" plagar ekki maddömunna ólíkt því sem margur heldur. Maddaman er hæst ánægð með snæða lakkrís í morgunmat ef að það hentar henni, vakna og sofna þegar henni sýnist og vaska upp þegar staðan er orðin svoleiðis að annaðhvort er að kaupa meira leirtau eða vaska upp! Maddaman hefur mikið velt því fyrir sér hvernig það má vera að þetta sé það helsta sem að fólk vanhagar um að vita þegar spurt er frétta af maddömunni. Maddaman ferðast og hittir fólk, stundar nám og vinnu, les sér til skemmtunar og er ekki ófróð kona um menn og málefni! En þrátt fyrir allt þetta þá brennur þessi spurning á vörum fólks! Ein góð vinkona maddömunar svarar þessu á snaggarlegan hátt og segir hátt og snjallt að hún hneigist ekki til karlmann. Slegið hefur óhugnalegri þögn á samkvæmi með þessum orðum og maddaman getur ekki neitað að hún gælir við hugmyndina að svara á þennan hátt!
En maddaman er auðvitað alltaf opin fyrir tillögum....ef einhver veit af kassavönum, lítið notuðum, drykkfelldum og söngelskum Íslending...þá er víst ekki búið að þrengja hringinn of mikið!
Svo mörg voru orð!

miðvikudagur, nóvember 17

Framkvæmdagleði og fleira gott....

Dagar maddömunnar eru dimmir og langir um þessar mundir og augnlokin ákaflega síð á morgnana! Maddaman lumar þó á góðu húsráði frá menntaskólagöngu sinni við þessu en það er að lofa sér því hátíðlega að leggja sig um leið og maður hefur lausa stund til þess! Maddömunni þykir harla gott að falla fyrir þessu bragði hvern einasta morgun.....því af lagningunni verður aldrei neitt og munar maddömuna í gamla góða daga þegar þetta var iðkað reglulega.
Maddaman er manneskja framkvæmda eins og allir vita sem þekkja hana. Maddaman hitti fyrrum samstarfskonu sín í dag sem að rifjaði upp gamla góða daga þegar maddaman leysti af á skrifstofu stúdentagarðanna! Aðalstarf maddömunnar var að meta hvort að íbúar garðanna sýndu nægilega námsframvindu til að geta búið áfram á görðunum! Maddaman sendi svo viðkomandi bréf með viðeigandi innihaldi! Bréfin þau arna voru inn í tölvukerfi Dan- Ejendom sem að ræður yfir töluvert meira húsnæði. Samstarfskona maddömunnar er engin tölvumanneskja og setti hana lauslega inn í þetta kerfi, og skrifaði maddaman fjölda bréfa daginn þann! Þegar maddaman kom glöð og reif til vinnu sinnar morguninn eftir var uppi fótur og fit og samstarfskonan gráti næst. Forstjórinn og yfirdeildarstjóri fyrirtækisins voru lamaðir af skelfingu því að maddaman hafði gefið tölvukerfinu skipun um að segja upp öllum leigendum í ákveðnum götum!!!! Talvan var svo búin að dunda við að segja liðinu upp alla nóttina meðan maddaman svaf á sínu græna og "anede ikke uraad". Það voru u.þ.bþ 4500 manns sem að maddaman hafði sagt upp af einskærri atorkusemi og þetta gátu menn athugað í rafræna kerfinu sínu!! Fólk sem búið var að búa í 30 ár í sömu íbúðinni átti bara að pakka í hvelli og flytja! Maddaman var óneitanlega rjóð í kinnum fram eftir degi.....en nú 2 árum seinna þykir henni þetta bráðfyndið!
Maddaman hefur móttekið ýmsar ábendingar eftir að hún hóf netheimaskrifin og þar á meðal að eigi sé hægt að kommenta spekina. Maddaman mun setja tæknimenn sína í málið og leysa hið bráðasta. Anders har også klaget over at han ikke forstår hvad maddaman skriver...men Anders jeg har jo fortalt dig at du skal tage dig sammen og lære lidt islandsk!!!
Svo mörg voru þau orð!



Íslands forni fjandi....

Maddaman stundar vinnu sína grimmt á þriðjudögum. Þykir maddömunni gaman að sproka við karlkyns vinnufélaga sína en það er eina tegundin af Homo Sapiens sem er í boði á vinnustaðnum ásamt maddömunni! Þykir maddömunni þetta góð tilbreyting frá skólanum en þar er mikið um stjórnsamar kvensur og skörunglegar!
Maddaman les gjarnan Politiken í frúkostpásunni og í dag las hún um hvernig Baugsheimsveldið eru að kaupa upp sína fornu fjendur. Maddaman gat ekki annað en skotið á vinnufélagana og sagði þeim að nú væri verið að hefna fyrir maðkaða hveitið forðum og flest vígi væru fallin. Það væri bara drottningin eftir. Það vakti gríðarlega kátínu og yfirmaður maddömunnar sagði að Íslendingum væri guðvelkomið að fá hana með öllu tilheyrandi. En maddaman var snögg að afþakka þann bagga á þjóðina. Nóg er nú samt!
Svo mörg voru þau orð....

mánudagur, nóvember 15

Maddaman hefur upp raust sína....

Þá er komið að frumraun maddömunnar í netheimum!
Hér verður leitast við að svara lífsgátunni með heimspekilegum tilgátum ásamt hæfilegum skammti af sproki í bland!