miðvikudagur, desember 1

Jólahvað....

Maddaman gefur hér með út opinbera tilkynningu! Maddaman er á leiðinni á klakann til þess að eyða jólunum með Sumarhúsabóndanum, konu hans og jöklinum. Maddaman getur ekki annað en puðrað þessum fréttum út yfir netverja af tómri tilhlökkun. Madamman hefur nebbilega ekki haldið síðustu tvenn jól á Ísalandinu og síðustu þrenn jól hefur hún ekki hitt jökulinn heldur! Smá tölfræði hérna. Maddaman þarf samt að vera iðin við kolann og hafa bækurnar með sér en hún hlakkar til að heyra friðsælt jórtrið í kindum Sumarhúsabóndans og að heyra konu hans skarka í eldhúsinu á morgnana og heyra jökulinn ræskja sig og hlæja dátt!
En þangað til vonar maddaman að það fari ekki fyrir henni eins og Skrámi okkar....50 mg af valíum og eina viskíflösku á dag fram að jólum( skítt með viskíð en maddaman er ekki fyrir pilluát ), því að það er ýmislegt sem maddaman þarf að framkvæma!!!!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gleður að heyra síðustu fréttir, þau bíða þín vafalítið spennt í Hlíðinni. Njóttu nú daganna heima.
Kv Begga

Nafnlaus sagði...

Frábært, hlakka til að sjá þig í kringum jólin, kv. Dögg

Nafnlaus sagði...

Frábært!! Þá geturðu nálgast ameríkugóssið mun fyrr en hefði verið;)
RLÞ