miðvikudagur, desember 15

Ondúleringar með meiru...

Maddaman var í ondúleringum í dag enda eins gott, því að maddaman frétti í ondúleringunni að Bubbi væri á lausu....maddaman er svona að pæla í hvort að laginu "Brynja ég elska þig" verði kannski breytt í kjölfarið!!!
Þar sem maddaman er farin að reka áróður fyrir jólagjöfum á annað borð þá finnst henni nýi diskurinn með "Á móti sól" mjög skemmtilegur en þar eru tekin 12 gömul og góð íslensk lög og útsett á ný! Maddaman er búin að heyra ein 4 og finnst skemmtilegt og ekki spillir fyrir að söngvarinn hann Magni er náfrændi og skólabróðir maddömunnar frá fornri tíð! Maddaman húxar að hún "styrki strákana" eins og góðvinkona maddömunar segir svo gjarnan og kaupi diskinn á Fróninu. Verður það þá geisladiskur númer 3 sem keyptur hefur verið á árinu og kallast það víst gott diskaár hjá maddömunni!!!

Engin ummæli: