fimmtudagur, nóvember 18

Stuðningur og fleira.......

Maddaman hefur fengið fjölda stuðningsyfirlýsinga og heillaóskir með nýja bloggið. Maddömunni líður eins og hún hafi gert eitthvað merkilegt t.d. fengið gott kjör, tekið gott próf eða alið af sér afkvæmi, svo mikill er samhugurinn! En maddaman er hamingjusöm með það!
Maddaman vill að gefnu tilefni upplýsa mál málanna sem hefur legið þungt á velunnurum og aðdáendum maddömunnar...en það er hjúskaparstaða maddömunnar! Hún er óbreytt semsagt ekkert nýtt af maddömunni. Maddaman hefur áður lofað og lýst því yfir í votta viðurvist að það verður gefin út tilkynning þegar eitthvað gerist, á prime time á Rás2 milli veðurfregna og dánarfregna! En þá veit maddaman að eyru manna eru hvað sperrtust! Þetta "ástand" plagar ekki maddömunna ólíkt því sem margur heldur. Maddaman er hæst ánægð með snæða lakkrís í morgunmat ef að það hentar henni, vakna og sofna þegar henni sýnist og vaska upp þegar staðan er orðin svoleiðis að annaðhvort er að kaupa meira leirtau eða vaska upp! Maddaman hefur mikið velt því fyrir sér hvernig það má vera að þetta sé það helsta sem að fólk vanhagar um að vita þegar spurt er frétta af maddömunni. Maddaman ferðast og hittir fólk, stundar nám og vinnu, les sér til skemmtunar og er ekki ófróð kona um menn og málefni! En þrátt fyrir allt þetta þá brennur þessi spurning á vörum fólks! Ein góð vinkona maddömunar svarar þessu á snaggarlegan hátt og segir hátt og snjallt að hún hneigist ekki til karlmann. Slegið hefur óhugnalegri þögn á samkvæmi með þessum orðum og maddaman getur ekki neitað að hún gælir við hugmyndina að svara á þennan hátt!
En maddaman er auðvitað alltaf opin fyrir tillögum....ef einhver veit af kassavönum, lítið notuðum, drykkfelldum og söngelskum Íslending...þá er víst ekki búið að þrengja hringinn of mikið!
Svo mörg voru orð!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Loksins, loksins hefur langþráður draumur ræst. Til hamingju með framtakið, verð örugglega fastagestur hér. Kv Begga

Nafnlaus sagði...

Hellelúja, sammála Beggu. Lýsi yfir mikilli ánægju með að það skemmtilegasti penni sem ég þekki sé farinn að láta ljós sitt skína á öldum netsins. Mun eflaust skemmta mér oft og mikið við lesturinn:) Bkv. Arna Hösk.

Nafnlaus sagði...

Ok, bara smá prufa. Nú verður sett pressa á madömuna, nýtt blogg á hverjum degi!! Síðan verður sett í daglegu net rútínuna mína með mogganum og ruv.is.:)

RLÞ