fimmtudagur, ágúst 24

Leaving Las Vegas.......

Nú hefur maddaman upp raust sína í síðasta skipti úr Kardimommubænum J-604. Hér húkum við Páll í vægast sagt tómum kofunum, ekkert eftir nema skúra sig út og bloggum síðasta danska bloggið. Maddaman ætlar nú samt að kúra í sínu rúmi í nótt og kveðja það vel og vandlega áður en það tekur að þjóna nýjum eiganda. Hafurtask maddömunnar fór áleiðis til skips í dag og geta ættingjar og vinir farið að streyma úr bænum undir næstu helgi en þá kemur góssið. Frumbýli í 101 hefst á mánudag og alvara lífsins viku síðar. Fyrir næstu flutninga eftir tvö ár u.þ.b. ætlar maddaman að vera búin að finna sér mann sem að getur eitthvað við flutninga (og kannski stautað eitthvað annað í lífinu), einnig væri gott að hann ætti íbúð.....eða kapítal til að fjármagna slíka.
Maddaman er þó búin að ákveða ef að fósturjörðin og ábúendur verða ekki góðir við maddömuna þá snýr hún aftur til Dana!!!!
Farvel Frans!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ohhh... það er svo langt síðan ég hef heyrt í þér:( Vonandi ganga flutningarnir vel og þú komir heilu og höldnu til fyrirheitna landsins. Heyri kannski í þér um helgina ef ég er heppin, eða þá bara frá 101 seinna:)

RT