fimmtudagur, ágúst 31

Hressóblogg nr II

Maddaman er örugglega komin á terrorlista hjá Samskipum fyrir að vera búin að plaga þá daga og nætur um þennan afleggjara af búslóð. Flestir ættingar og vinir leggja af stað úr bænum í kvöld til að missa örugglega af þessum flutningum!
Maddaman er líka komin með flensustofn haustsins og hefur mest verið í láréttri stöðu síðan seinnipartinn í gær. Brauðstritið byrjar á morgun en þá skilst madömmunni að fara eigi fram sýnikennsla á kaffivélina og er það meginþema fyrsta dagsins! Maddaman tók þó hverfisrölt í morgun og fór aðeins í Melabúðina og sýnist ekkert hafa breyst mikið á þessum 9 árum síðan að maddaman bjó á þessum slóðum!
Í þessum töluðum orðum eru einhverjir hnakkar og undarlegar kvensur í þeirra selskap að bjóða maddömunni að setjast hjá sér ef að ske kynni að henni leiddist....maddaman sagðist skemmta sér konuglega við að hlusta á vitleysuna í þeim og þar með var málið dautt!!!

P.S Liðið við hliðina á mér er alveg að snappa....allt í einu var komin fingur hér yfir tölvuskjá maddömmunnar, eigandinn auðvitað hnakkinn á næsta borði! "Hej nú var ég næstum búin að bösta þig á klámsíðunum!!!! Maddaman sendi honum hárfínt bros samansett af vítissóda og saltsýru! Maddaman veltir fyrir sér sálarástandi svona liðs (þau eru búin að bögga alla á borðunum í kring og þekkja engan)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Eins gott að þú náðir að loka klámsíðunum áður en hann "böstaði"" þig hahahaha
Eins gott þú hættir ekki að blogga eftir að þú komst á klakann. Alltaf jafn gaman að lesa bloggin þín.
Kveðja Íris

Nafnlaus sagði...

og ef þig vantar sessunaut á kaffihúsið þá er nr mitt 8634481. kv úr austurbænum
Perla