þriðjudagur, ágúst 15

Bloggedíbloggedíblogg

Maddaman er að verða búin að pakka mestöllu lífi sínu í kassa. Sumarhúsarbóndinn sem samkvæmt heimildum býr víst í heilsárshúsi(he,he) átti 66 ára afmæli í gær. Fram fóru hefðbundin hátíðarhöld í Sumarhúsum.
Maddaman getur ekki alveg gert upp við sig hvort að hér verður haldið áfram að blogga við heimkomuna. Ástæðan er náttúrulega sú að í upphafi var lagt upp með að maddaman bloggaði til að halda við kjarnyrtri íslenskukunnáttu sinni og sérílagi stafsetningu, en farið var að bera á því að maddaman mundi ekki hvernig stafsetja ætti einstaka orð. Maddaman fer að tala kjarnyrta íslensku við skjólstæðinga sína þegar heim verður komið og leysir þar með þetta mál. Held að þetta verði látið ráðast allt saman, fer eftir því hvursu mikinn innblástur maddaman fær á Hlemmi!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

alveg bannað að hætta að blogga!!!!
Kv. Ragnhildur A

Nafnlaus sagði...

Sammála síðasta ræðumanni.... þú hlýtur nú að fá innblástur á fleiri stöðum en Hlemmi;)

RT