miðvikudagur, september 5

Hjólhýsapakkið.......

Á okkur hjónaleysin hefur herjað fyrsta flensa vetrarins all hressilega. Fyrst lá ég eins og skata miðvikudag og fimmtudag í síðustu viku og sló svo hressilega niður á laugardaginn og hef ég legið síðan. Húsbóndinn lagðist svo mér til samlætis í morgun og þegar við skriðum úr bælinu um hádegisbilið og sátum sitt í hvorri fartölvunni varð mér að orði að við værum eins og hjólhýsapakk sem nennti ekki að vinna og væri bara heima að horfa á sjónvarpið og nennti ekki einu sinni að laga til eða klæða sig, væri bara á náttfötum og bómullarbolum að lufsast um. Við viljum ekki vera hjólhýsapakk svo að ég ætla í vinnuna á morgun;O)

1 ummæli:

Unknown sagði...

Mikið vona ég að þið séuð búin að ná heilsu. Veit fátt verra en einhver veikindi, hvort heldur er á mér eða öðrum.
Kær kveðja frá okkur öllum
Kolla og fylgifiskar