sunnudagur, febrúar 24

Konudagur,,,,

Mér hafði mistekist eitthvað að vista myndirnar af fasteignasíðunni en getur verið að eigendurnir lumi á þeim og ég láti þær inn seinna;o)
Í dag er konudagurinn og á morgun 25. verð ég 31. árs. Það er hafinn andlegur undirbúningur yfir því að vera komin á fertugsaldur en hvað um það ég hef allavega aldrei verið eins hamingjusöm og glöð á ævinni. Eiginmaðurinn elskulegi færði mér blómvönd áðan í tilefni konudagsins og svo afmælisgjöf líka. Við hlökkum ægilega til að fara að hreiðra um okkur á Ljósvallagötunni Nýtt heimasímanúmer þegar við flytjum þangað verður 5515378.

5 ummæli:

Unknown sagði...

Hélt að þú værir barasta hætt að blogga, en sem betur fer er það nú ekki ;o)
En innilega til hamingju með allt saman, nýju íbúðina og afmælið.
Bestu kveðjur
Íris M.

bjorn sagði...

sæl mín kæra.
til hamingju með íbúðakaup og afmælið.ljósvallagatan er yndislegur staður að vera á.
ég hlakka til að sjá myndir af nýja húsinu.
bestu kveðjur til bóndans.
ingibjörg

Unknown sagði...

Til hamingju með nýja húsið. Veit að það á eftir að fara vel um ykkur þarna enda slotið ekki að öllu ókunnugt ;)
Kveðja
Kolla,Kiddi og co

Unknown sagði...

Til hamingju með íbúðakaupin, hlakka til að kíkja í heimsókn í sumar.
Kv. Elísabet

SBS sagði...

Takk fyrir takk öllsömul;O)