Baðkarsskriflið er alveg að bresta til Betlehemborgar, þota Flugleiða er að fylla á eldsneyti og smákökur og búa sig á stað frá flugstöð Leifs heitins Eiríksonar (sem by the way þótti öruggara að fara sjóleiðina) til þess að sækja maddömuna meðal annars. Og hvað er maddaman að gera...situr hún afslöppuð í casual suit eins og í auglýsingum Ielandair að supla hvítvín og hringja yfiveguð símtöl í bankann til að láta færa árshagnaðinn á milli gullbóka útaf skattaafslætti! Oseiseinei maddaman er barasta að færa jólagjafirnar á milli taskna, þrífa ískápinn leita að jólakjólnum í fataskápnum og glósunum í sama skáp.....allt í sömu andránni! En örvæntið ekki, maddaman hefur erft tækni Sumarhúsabóndans í svona aðstæðum og hver er hún...jú að setjast niður og blogga!!!!
Þakka ykkur góðar kveðjur...sérstaklega þeim sem ekki þorðu að koma fram undir eigin nafni!!!
þriðjudagur, desember 21
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli